Hvað er hægt að fá, í hvaða málum og með hvaða fyllingu. Þetta skjal er vörulistinn — hitt skjalið segir til um uppsetningu, undirstöður og magn.
Fylgiskjal: Gabíónur — girðingar og stoðveggir (uppsetningarbæklingur)
Allar gabíónur eru byggðar úr punktsoðnum stálvírmottum. Munurinn liggur í því hvernig motturnar tengjast — og það ræður bæði útliti, vinnu og því hvað er hægt að gera.
Mottur tengdar með spíral sem skrúfaður er inn gegnum möskvana eftir allri brúninni. Fljótlegt og sterkt — engin sérverkfæri.
Motturnar eru soðnar með lykkjum allan hringinn og tengdar með stöng sem rennt er gegnum lykkjurnar. Gefur jafnara yfirborð en spírall.
Sama læsing og í lykkjugerðinni, en vírendarnir eru beygðir inn í lykkjur strax í framleiðslu — ekkert stendur út sem hægt er að rispa sig á.
Framleitt í Þýskalandi · Galfan-húðun (sink/ál), lágmark 350 g/m² · saltúðapróf skv. DIN EN ISO 9227 NSS · vírana má klippa, beygja og móta á staðnum án þess að húðunin springi eða flagni.
Girðingargabíónur eru 30 cm djúpar og fást í öllum samsetningum af fjórum breiddum og fjórum hæðum. Stöðugleikinn kemur frá innri stálstaurum (4×4 cm) sem steyptir eru niður í hulsur — eða festir á fyrirliggjandi steypta undirstöðu með fótplötu.
| Hæð \ Breidd | 500 mm | 1000 mm | 1500 mm | 2000 mm |
|---|---|---|---|---|
| 500 mm | ● | ● | ● | ● |
| 1000 mm | ● | ● | ● | ● |
| 1500 mm | ● | ● | ● | ● |
| 2000 mm | ● | ● | ● | ● |
Dýpt alltaf 300 mm. Hver stærð fæst í tveimur möskvaútfærslum (kafli 04) — og bæði með og án innri staurs.
| Atriði | Staðan |
|---|---|
| Spíralar og millistykki | Fylgja með í réttu magni skv. fyrirmælum framleiðanda |
| Innri staur | Valkostur — körfur fást bæði með og án. Frá 1 m hæð er staur nauðsyn |
| Milliveggur | Fylgir á hverjum metra í öllum einingum frá 2 m breidd, festur með tveimur aukaspírölum |
| Burðarþolsvottun | Staðlaðir útreikningar (Typenstatik) liggja fyrir að 2000 mm hæð |
| Grunnkarfa og viðbótarkarfa | Kerfið er einingakerfi — hægt að lengja síðar án þess að rífa upp |
Framleiðandinn er einnig með grennri girðingarlínu (STA25) og gróðurveggjakerfið Pergone® fyrir græna veggi. Hvorugt er í staðallista okkar — við sækjum forskrift og verð ef þið hafið áhuga.
Fyrir stoðveggi, garðveggi, upphækkuð beð, bekki og öll dýpri verk eru notaðar stakar körfur. Þær eru dýpri en girðingargabíónur og standa á eigin þyngd.
| Mál | Staðalvalkostir |
|---|---|
| Breidd (lengd einingar) | 500 · 1000 · 1500 · 2000 mm |
| Dýpt | 500 · 1000 mm |
| Hæð | 500 · 1000 mm |
| Möskvi | Þrír valkostir — sjá kafla 04 |
| Fylgihlutir | Spíralar og millistykki fylgja |
Hærri veggir eru byggðir upp með því að stafla einingum og þrepa þær aftur — sjá kafla 15 og 18 í uppsetningarbæklingnum.
Möskvinn ræður bæði útliti og því hversu smátt grjót má nota. Þéttari möskvi (50×100 mm) heldur smærra grjóti og er notaður þar sem sést í vegginn; grófari möskvi (100×100 mm) er ódýrari og notaður þar sem ekki sést.
| Útfærsla | Hvar | Athugasemd |
|---|---|---|
| 50 × 100 mm á öllum flötum | Frístandandi veggir, girðingar sem sjást báðum megin | Snyrtilegasta útlitið, mest efni |
| 50 × 100 mm að framan og aftan (og á sýnilegum göflum), 100 × 100 mm annars staðar | Algengasta girðingarútfærslan | Sama útlit þar sem sést, hagkvæmara |
| 50 × 100 mm á framhlið, 100 × 100 mm annars staðar | Stakar körfur upp við halla eða vegg | Aðeins framhliðin sýnileg |
| 100 × 100 mm á öllum flötum | Stakar körfur þar sem ekkert sést | Krefst grófara grjóts |
Steinninn þarf alltaf að vera stærri en möskvinn. Fyrir 50 × 100 mm möskva er miðað við 60–120 mm stein. Grófari möskvi kallar á grófara grjót.
Tilbúnar einingar í mörgum málum, með öllum fylgihlutum. Þægileg vinnuhæð, meiri jarðvegshiti og betri vörn gegn meindýrum.
Kringlóttar og ferkantaðar súlur í mismunandi hæðum, þvermálum og möskvastærðum — sem stakt stílelement eða í stað hefðbundins girðingarstaurs.
Grunn gabíónuklæðning utan á steypta veggi eða mannvirki — grjótáferð án þess að byggja heilan vegg.
Jarðvegsdúkur og gróðurdúkur — nauðsynlegur aftan við stoðveggi og í beðum. Sjá kafla 17 í uppsetningarbæklingnum.
Sérstakir bekkjarhaldarar (520 × 40 mm) sem festir eru á körfuna og bera timburseturnar — gabíóna verður að útibekk.
Glerbrot í lögum með náttúrusteini, með LED-lýsingu innan í körfunni. Einnig hægt að sameina við vatn — gosbrunn eða fossandi vegg.
Grjótið er það sem sést. Það ræður lit, áferð og þyngd veggjarins — og er sá hluti verksins sem oftast má leysa með efni af svæðinu.
| Steintegund | Útlit | Rúmþyngd | Þrýstiþol | Frostþol |
|---|---|---|---|---|
| Granít | Mið- til grófkornótt, jöfn áferð, ljóst til grátt | 2300–2800 kg/m³ | 110–360 N/mm² | Já |
| Basalt | Dökkgrátt til svart, fínkornótt | 2600–3300 kg/m³ | 155–390 N/mm² | Já |
| Dólómít | Hvítt, fílabeinslitt, ljósgrátt eða grágult | 2400–2900 kg/m³ | 125–250 N/mm² | Já |
| Kvarspostulín (Quarzporphyr) | Rautt til dökkrautt, stundum brúnleitt | 2200–2800 kg/m³ | 90–340 N/mm² | Já |
| Hraungrýti (Lava) | Rauðbrúnt til dökkbrúnt, gropið og hrjúft | ~2300 kg/m³ | ~165 N/mm² | Já |
| Kalksteinn | Ljóst, grátt eða grágult, stundum rauðleitt | 1900–2800 kg/m³ | 60–235 N/mm² | Ekki allur |
| Glersteinar | Gegnumlitað gler í mörgum litum | — | — | Já |
Frost-þíðu víxlverkun er harðari hér en víðast í Evrópu. Veljið frostþolinn stein — kalksteinn er ekki allur frostþolinn og á ekki heima í útivegg án staðfestingar. Íslenskt hraun- og blágrýti hentar vel og er oft ódýrasta lausnin þegar flutningur er tekinn með í reikninginn.
Algengast er að leggja glerbrot í lögum á milli náttúrusteins fremst í körfunni, eða í mynstri, og lýsa upp innan frá.
Þetta fylgir að jafnaði með körfunum, en fæst líka stakt — til viðbótar, í sérmál eða til viðgerða.
| Hlutur | Staðalstærðir | Til hvers |
|---|---|---|
| Spíralar | 300 · 500 · 1000 · 1500 mm | Tengja mottur eftir allri brúninni |
| Millistykki | 115 · 215 · 315 · 515 · 1015 · 1515 mm | Halda hliðum í fjarlægð, hindra útbungun |
| Millistykki með togvír (ZH) | 315 mm | Aukastyrking þar sem þrýstingur er mestur |
| Stálstaurar með hettu | 1200 · 1900 · 2400 mm | Innri burður frá 1 m hæð; steyptir niður |
| Fótplata | 200 × 150 × 10 mm | Festa staur á fyrirliggjandi steypta undirstöðu |
| C-hringir | Lausir og í pakkningum | Boga, klipptar mottur, viðgerðir |
| Klemmutöng fyrir C-hringi | Með eða án magasíns; einnig sett með hringjum | Eina leiðin til að loka C-hring rétt |
| Bindivír, klipptur | 375 mm bútar | Aukafestingar og innri stög |
| Universalhaldari / akkerisplata | 130 × 40 × 30 mm | Festa körfu við mannvirki eða annan flöt |
| Bekkjarhaldari | 520 × 40 mm | Bera setu á gabíónubekk |
Klemmutöng fyrir C-hringi er eina sérverkfærið í öllu verkinu — og hún þarf aðeins að vera við höndina ef girðingin er bogadregin eða mottur eru klipptar til. Bein girðing með spírölum þarf ekkert umfram töng og boltaklippur.
Staðalstærðirnar eru útgangspunktur, ekki takmörkun. Framleiðandinn tekur við teikningum, skissum og grunnmyndum og útfærir þær:
Sendið okkur mál, teikningu eða jafnvel mynd af aðstæðum á info@3xt.is — við setjum upp lausnina og gerum tilboð. Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða litla lóð eða stórt verk.
Myndir frá verkum framleiðandans í Þýskalandi og Austurríki — allt frá lóðamörkum við einbýlishús upp í brúarvirki og hljóðveggi við hraðbrautir.
Myndir: HS Gabionen. Fleiri verkefnamyndir eru til í myndasafni framleiðandans og við sendum þær gjarnan fyrir tiltekna gerð verks.
| Ef verkið er… | Þá er lausnin |
|---|---|
| Bein girðing á lóðamörkum, ekkert í halla | Girðingargabíóna 30 cm, spírallæsing, möskvi 50×100 að framan og aftan, staur frá 1 m hæð |
| Girðing með bogum eða sérformi | Sama, en C-hringir og klemmutöng í bogana og breiðari botn- og lokmottur |
| Girðing við leikskóla, skóla eða leiksvæði | S-gabíóna — engir útstandandi vírendar. Sérpöntun: dýrari og mun lengri afhendingartími, svo ákveða þarf það strax í upphafi |
| Halda við jarðveg eða brekku | Stakar körfur, breidd 50–65% af hæð, dren og jarðvegsdúkur. Frá 1,5–2 m: burðarþolshönnun |
| Hljóðvörn við umferðargötu | Massi ræður — meiri þykkt og þéttari hleðsla fremst |
| Skrautform, beð, bekkir, súlur | Stakar körfur eða tilbúnar einingar; glersteinar og lýsing ef við á |
| Klæða steyptan vegg | Veggklæðning — grunn karfa fest utan á |
Hvert verk er sérstakt og pantað sem slíkt. Efnið er framleitt eftir þínum málum, ekki tekið af hillu, svo enginn fastur verðlisti er til — og ekki er hægt að gefa upp verð fyrr en rétt magn og upplýsingar um verkið liggja fyrir.
Þegar þær eru komnar sækjum við verð í efnið og flutninginn á þitt verk og sendum tilboð. Tilboð 3xT gilda í 14 daga því hráefnisverð sveiflast.
Heildarlengd og kaflaskipting · hæð hvers kafla · dýpt · girðing eða stoðveggur · beinir eða bogadregnir kaflar og hvort hlið séu í línunni · aðstæður á staðnum (halli, jarðvegur, nálæg mannvirki) · afhendingarstaður.
Teikning, skissa eða einföld upptalning dugar alveg — við tökum líka við grófum hugmyndum og útfærum þær.