3xT · Snoei stálbyggingar

Tækniblað — húsgerðir og stærðir

Fimm staðlaðar húsgerðir, allar með súlnalaust haf yfir breiddina og hannaðar fyrir íslenskt vind- og snjóálag. Tölurnar hér að neðan eru leiðbeinandi staðalstærðir.

5 húsgerðir CE-vottað · EN 1090-2 Súlnalaust haf Lengd frjáls · 2,5 m þrep

Romney — hálfhringlaga bogi

Létt og hagkvæm bogabygging. Bogaþakið dreifir álagi jafnt, sem gefur minnsta efnismagn og lægsta flutningskostnað. Hentar geymslum, vélaskemmum, flugskýlum og landbúnaði. Hæð er mænishæð (enginn lóðréttur veggur nema með upphækkun — sjá neðan).

GerðBreidd (haf)MænishæðAthugasemd
R55,2 m3,25 mMinnsta gerð — má lyfta/flytja heila
R87,6 m3,80 mSmáhýsi, geymsla, skýli
R1111,0 m5,50 mHáveggja útgáfa 6,50 m fáanleg
R1212,0 m5,50 mHáveggja útgáfa 6,50 m fáanleg
R1515,0 m5,75 mHáveggja útgáfa 6,75 m fáanleg
R1717,0 m5,65 m
R1919,0 m5,70 m
R2121,0 m6,00 m

Valkostur — 1 m upphækkun undir veggi: boginn reistur á 1 m lóðréttum stálkafla frá verksmiðju. Mænishæð hækkar um 1 m og lofthæð við hliðarnar eykst að sama skapi (sbr. háveggja útgáfur R11, R12 og R15). Sérpöntun; burðarþol reiknað fyrir hvert hús.

Meiri heildarbreidd fæst með MultiSpan (MS) — tvö eða fleiri samtengd höf í röð.

Variant — lóðréttir veggir + bogaþak

Bogabygging með lóðréttum hliðarveggjum. Betri veggnýting og lofthæð við veggi en Romney, heldur samt flestum kostum bogans. Hentar atvinnuhúsnæði, verkstæðum og lager. Vegghæð er lóðrétti veggurinn; mænir er hærri.

Breidd (haf)Fáanlegar vegghæðirMænishæð (eftir vegghæð)
5,5 m2,6 / 3,8 m3,6 / 4,6 m
8 m2,6 / 3,8 / 5,0 m4,45 / 5,50 / 6,75 m
10 m2,6 / 3,8 / 5,0 m4,50 / 5,60 / 6,85 m
11 m2,6 / 3,8 / 5,0 m4,45 / 5,55 / 6,80 m
12 m2,6 / 3,8 / 5,0 m4,50 / 5,60 / 6,85 m
15 m3,8 / 5,0 m5,65 / 6,90 m

MultiSpan (MS) fæst í 8, 11, 12 og 15 m höfum fyrir stærri heildarflöt.

Variant+ — lóðréttir veggir + lítið bogadregið þak

Hámarks lofthæð og sterklegt, nánast beint þak. Hentar iðnaði, verkstæðum, verslun og sýningarrými.

Breidd (haf)Fáanlegar vegghæðirMænishæð (u.þ.b.)
5 m2,6 / 3,8 m3,05 / 4,00 m
6 m2,6 / 3,8 / 4,8 m3,05 / 4,00 / 5,00 m
7 m2,6 / 3,8 / 4,8 m3,05 / 4,00 / 5,00 m
8 m2,6 / 3,8 / 4,8 m3,10 / 4,00 / 5,00 m
9 m2,6 / 3,8 / 4,8 m3,05 / 4,00 / 5,00 m
10 m3,8 / 4,8 m4,00 / 5,00 m

Slandac — einhalla þak (mono-pitch)

Einföld einhalla lausn með lóðréttum veggjum — lág hlið og há hlið. Hentar vel viðbyggingum, skýlum og þar sem vatn á að renna til einnar áttar. Halli gefur mismunandi vegghæð sitt hvorum megin.

Breidd (haf)Lág vegghæðHá vegghæð (eftir vali)
5 m2,6 / 4,2 / 5,0 m3,5 / 5,1 / 5,9 m
6 m2,6 / 4,2 / 5,0 m3,7 / 5,3 / 6,1 m
7 m2,6 / 4,2 / 5,0 m3,9 / 5,5 / 6,3 m
8 m2,6 / 4,2 / 5,0 m4,1 / 5,7 / 6,5 m
9 m2,6 / 4,2 / 5,0 m4,2 / 5,8 / 6,6 m
10 m2,6 / 4,2 / 5,0 m4,4 / 6,0 / 6,8 m

Jawini — lóðréttir veggir + mænisþak

Hefðbundið mænisþak — kunnuglegt húsútlit. Hentar þar sem hefðbundið útlit skiptir máli.

Breidd (haf)Fáanlegar vegghæðirMænishæð (eftir vegghæð)
8 m2,6 / 4,2 m3,6 / 5,1 m
10 m2,6 / 4,2 m3,8 / 5,3 m
12 m4,2 / 5,0 m5,4 / 6,2 m
15 m4,2 / 5,0 m5,7 / 6,5 m

Lengd, álag og haf

Öll húsin má gera í hvaða lengd sem er, í 2,5 m þrepum. Staðalálag: vindur allt að 36 m/s og snjór Sk allt að 325 kg/m² — hærra álag fæst eftir þörfum. Breiddin sem gefin er upp er hreint haf (súlnalaust); með MultiSpan má tengja fleiri höf fyrir meiri heildarbreidd. Byggingarnar eru CE-merktar og framleiddar skv. EN 1090-2 (EXC2).

Sérsmíði og sérlausnir — utan staðallínunnar

Töflurnar sýna staðalgerðirnar, en Snoei framleiðir einnig mikið af sérhönnuðum byggingum. Innan framleiðslumarkanna — stálprófílar upp í IPE 400 og einingalengdir upp í um 10 m — má víkja verulega frá staðallínunni.

Við mjög háa hliðarveggi (8–10 m) eða mjög löng höf, töluvert umfram 15 m undir íslensku álagi, er hefðbundin stálgrind oft hagkvæmari. Sérsmíði er ekki í ConfiBuild — sendu lýsingu eða skissu á info@3xt.is.

Hurðir — gerðir og staðalmál

Sérhverri byggingu fylgir stór hurð í framgafli; gerð og stærð ræðst af húsinu. Aukahurðir í hliðum eða bakgafli eru valkostur.

Fyrirvari Allar tölur eru leiðbeinandi staðalstærðir. Endanleg mál, hæðir, hurðaop og styrking eru staðfest af Snoei með burðarþolshönnun fyrir hvern stað út frá vind- og snjóálagi. Kit-/söluaðilaverð er ekki birt hér; kaupendur fá heildarverð frá 3xT.

Hafðu samband

Sendu okkur stærðina sem þú ert að hugsa um, hvar húsið á að standa og í hvað það á að nýtast — við grunnhönnum og gerum þér tilboð sem stenst.

Tengiliður
Þorsteinn Erlingsson
Sími
Netfang
Vefur