3xT · Spa Europe saunahús & heitir pottar

Algengar spurningar og svör

Saunahús, saunatunnur, innrauðar saunur, ofnar, spa-hús, heitir pottar og viðarkynding frá Spa Europe — úr hitameðhöndluðu timbri, hönnuð fyrir íslenskar aðstæður og heilsársnotkun. Hér eru svörin við því sem oftast er spurt um.

Thermowood — heilsársnotkun Harvia-ofnar (WiFi valkostur) Sérsmíði eftir þínum þörfum Heitir pottar úr AISI 316 stáli Afhent á heimilisfang eða verkstað

Spa Europe er litháískur framleiðandi (UAB Spa Europe) sem sérhæfir sig í vönduðum saunahúsum, spa-húsum og heitum pottum. 3xT er söluaðili varanna, flytur þær inn og afhendir á heimilisfang eða verkstað. Uppsetning er ekki innifalin, en um hana má semja sérstaklega. Öll saunahús eru að grunni til úr hitameðhöndluðu timbri (thermowood) með Harvia-ofnum, og hægt er að sérsníða þau út frá grunngerð.

?Hvað kostar saunahús eða pottur hjá ykkur?

Við gefum eitt heildarverð frá 3xT þegar varan liggur fyrir — gerð og stærð, ofn, gler, einangrun, klæðning og litur, ásamt flutningi á þinn stað. Flest hús eru sérpöntuð og útfærð fyrir hvern viðskiptavin, svo það munar miklu í verði hvað er valið. Þess vegna viljum við gefa verð sem stenst: byggt á raunverulegri útfærslu, ekki ágiskun.

Segðu okkur hvaða gerð þú ert að hugsa um, stærð og hvar húsið á að standa, þá reiknum við þetta til enda fyrir þig. 3xT leggur áherslu á gæði og afhendingaröryggi — vandaðar vörur og öruggan flutning — frekar en að vera ódýrust.

?Hvaða gerðir eru í boði?

Vöruframboðið spannar allt frá litlum garðsaunum upp í fullbúin spa-hús og heita potta:

?Hvað komast margir fyrir og hvaða stærðir eru til?

Það fer eftir gerð. Donatello Mini (innra mál um 2,0 × 2,0 m) tekur um 4–6 manns og er minnsta húsið í línunni; Midi er sambærilegt en með verönd (má setja kaldan pott á veröndina); Maxi er stærst (um 6,5 m langt) og rúmar sauna + sturtu + hvíldar-/innrautt rými. Mini fæst líka í minni útfærslum (180×180 og 200×200 cm). Segðu okkur hvað þú ert að leita að, þá finnum við réttu stærðina.

?Get ég fengið sérsmíðað hús eftir mínum óskum?

Já — það er einmitt styrkur Spa Europe. Við eigum grunnlýsingu á Mini, Midi og Maxi sem er svo byggð ofan á með aukahlutum: þú getur sérsniðið stærð, innra skipulag, gler og glugga, ofnaval, einangrun, liti og klæðningu. Algengar sérsmíðar eru t.d. saunahús með innbyggðri sturtu og geymsluhillu fyrir pottabúnað, speglað skipulag (sauna öðrum megin, hvíld hinum megin) eða saunaklefi með auknu útsýni. Sendu okkur hugmyndina þína — mál, notkun og staðsetningu — þá fáum við tillögu og útfærslu frá framleiðanda.

Hér er yfirlit yfir helstu valmöguleika og takmarkanir í sérsmíði:

ValkosturÍ boði áAthugið / takmarkanir
Ytri litur (RAL)Öll húsFrjálst RAL-litaval
Klæðning — thermowood úti/inni, liggjandi eða standandiÖll hús—
Speglað skipulag (sauna öðrum megin, hvíld/sturta hinum megin)Donatello (t.d. Maxi)—
Gluggi á stafni (gafli)SaunaklefarEkki í boði í innrauðum klefa
Panorama-gler í framhlið (hálft eða heilt)Flest hús—
Ofnaval: 3,5 / 4,5 / 6 / 9 kW eða viðarofnÖll saunahús6 kW og stærri krefjast þriggja fasa tengingar
WiFi-stýring á ofniRafmagnsofnarKveikt/stýrt úr síma
Innrauður klefi (Harvia eða EOS, A/B/C geislar)Maxi (hvíldarherbergi) og sérsmíðiFestingar ekki staðlaðar milli Harvia og EOS
Sturta / sturtubotnMaxi og stærri, MarioÞarf frárennsli + hitaveitu eða vatnshitara
WC / klósettMaxi (á milli klefa), MarioÞarf frárennsli og vatnsinntak
Kaldur pottur / ísbaðÁ verönd (t.d. Midi)Sérsmíðað í sama lit og húsið
VeröndMidi (og eftir útfærslu)T.d. +50 eða +100 cm
LED-pakki (lampar, stjörnuloft, ljósrönd)Öll hús—
Bekkir (ösp eða alder)Öll hús—

Listinn er til viðmiðunar; endanleg útfærsla og takmarkanir eru staðfestar með framleiðanda fyrir hvert verkefni.

?Get ég haft sturtu eða WC? Og þarf hitaveitu?

Já. Í Maxi er hægt að hafa klósett eða sturtu á milli klefanna, og í Mario spa-húsinu fylgir fullbúið baðherbergi; tengistútar fyrir frárennsli fylgja þar sem sturta/WC er. Heill sturtuklefi er oft skynsamlegur til að minnka vatnsaga og rakamál, sérstaklega í húsi sem er ekki alltaf í notkun.

Þar sem sturta er þarf annaðhvort hitaveitu á svæðinu eða vatnshitara. Ef ekki nýtur hitaveitu má setja hraðvirkan vatnshitara (Mario kemur t.d. með Ariston 7 kW). Best er að ganga úr skugga um hitaveitu, frárennsli og vatnsinntak strax í hönnun — þá er allt á réttum stað þegar húsið kemur.

Frágangur sturtu skiptir öllu. Sturtubotninn þarf að hvíla á heilli, fullstuddri undirstöðu, eins og í venjulegu baðherbergi — ekkert holrými má vera undir honum. Frárennslið er tengt neðan frá, undir húsinu, af pípulagningamanni, og gott er að prófa þéttleikann áður en húsið er tekið í notkun. Við mælum með sturtuklefa eða glervegg frekar en sturtuhengi, svo vatn skvettist ekki á gólfið.

?Hvaða ofn fylgir og hvað þarf mikið rafmagn?

Saunahúsin koma með Harvia-ofnum (t.d. Cilindro-línan), og ofn er valinn eftir stærð húss. Þumalputtaregla: 3,5 kW í minni húsum, 4,5 kW í stærri, og hægt að uppfæra í 6 kW eða 9 kW. Einn fasi dugar fyrir 3,5 og 4,5 kW ofna, en fyrir 6 kW og stærri þarf þriggja fasa tengingu — við mælum almennt með þriggja fasa. Ofn fæst með WiFi svo hægt sé að kveikja og stýra úr síma. Viðarofn er líka valkostur í hluta línunnar (skorsteinn, hlífðarplata og steinar fylgja).

?Hvað er innrauð sauna og hver er munurinn á geislum?

Innrauð sauna hitar líkamann beint með innrauðum geislum í stað þess að hita loftið eins og hefðbundin gufa. Geislarnir flokkast eftir bylgjulengd: A fer dýpst og hentar endurheimt og blóðflæði, B örvar svita og eiturefnalosun, og C gefur mjúkan yfirborðshita og rólega slökun. „Full Spectrum" sameinar alla þrjá — allir geislarnir hafa því misjafna virkni. Í Maxi má t.d. útfæra hvíldarherbergið sem innrauðan klefa. Velja má milli Harvia (hagkvæmt, einfalt og áreiðanlegt) og EOS (þýsk verkfræði, meiri sérstilling og premium-tilfinning). Athugið að festingar eru ekki staðlaðar milli framleiðenda, svo gott er að velja rétt strax.

?Eru húsin einangruð og má nota þau allt árið?

Já. Donatello-húsin eru einangruð heilsárshús: gólf með 80 mm einangrun og rakavörn, burðargrind úr C24-timbri með 100 mm steinull, rakavarnarlag að innan og vind­varnarlag með hitameðhöndlaðri furu að utan. Thermowood þolir íslenskt loftslag og hitasveiflur vel, svo húsin henta til notkunar allt árið. Öll saunahús sem koma til Íslands eru auk þess með sérstöku músaneti undir húsinu.

?Úr hverju eru húsin og pottarnir — og hvað með viðhald?

Saunahúsin eru úr hitameðhöndluðu timbri (thermowood): furan er hituð við 160–215°C án efna, sem gerir hana sterkari, stöðugri og endingarbetri. Hún tekur upp lítinn raka, sprungur og skekkjur eru sjaldgæfar, og hún er viðhaldslítil — þarf ekki að mála eða olíubera, fær náttúrulegan gráan tón með tímanum eða má viðhalda með viðarolíu.

Stáleiningar í heitu pottunum eru úr AISI 316 ryðfríu stáli, sem inniheldur mólýbden og þolir salt, raka og frost án þess að ryðga — hentar heilsársnotkun úti. Pottaskeljarnar eru úr hágæða USA Aristech acryl sem rispast ekki við venjulega notkun. Stál þarf aðeins reglulega skolun með hreinu vatni og mild hreinsiefni.

?Hvað einkennir heitu pottana?

Pottarnir eru handgerðir úr USA Aristech acryl með Balboa- eða Gecko-stýringu, ozon-hreinsikerfi, hringrásar- og nudddælum og einangrun á öllum hliðum. Þeir má nota sem saltvatnspotta (mildari fyrir húð). Elite-potturinn er viðarkyntur með innbyggðum ofni úr AISI 316 ryðfríu stáli og hitnar hratt. Rafmagnshitara (Gecko) má bæta við, og þá er hægt að nota viðinn, rafmagnið eða hvort tveggja — t.d. halda hita á pottinum án þess að kveikja upp. Elite fæst sérsmíðaður í sama lit og saunahúsið. 3xT veitir 2ja ára ábyrgð á pottunum. Athugið að rafmagnskapall fylgir ekki og fagleg uppsetning er nauðsynleg (annars fellur ábyrgð niður).

?Seljið þið viðarkyndingu fyrir heita potta?

Já. Utanáliggjandi viðarofnar úr AISI 316 ryðfríu stáli henta bæði nýjum pottum og til að gefa eldri viðarpottum nýtt líf. AISI 316 þolir salt og klór og ryðgar ekki í gegn eins og venjulegt stál eða ódýrari ryðfríar gerðir gera með tímanum.

StærðAflHentar
50 cm22 kWMinni pottar
60 cm26 kWMeðalstórir pottar
75 cm28 kWStórir pottar — sá öflugasti

Tengistútar fyrir slöngur eru 48 mm, vatnsaftöppun 20 mm og reykrörið Ø125 mm. Skorsteinn fylgir öllum ofnunum. Sem gróft viðmið hitar 28 kW ofninn um 2.000 lítra pott upp í baðhita á um þremur klukkustundum við góðan bruna og með lok á pottinum. Ef ofninn á að tengjast eldri potti er gott að senda okkur stærð pottsins og mál á stútunum, helst með mynd.

Sjá nánar á vörusíðunni Viðarkynding.

?Bjóðið þið kalda potta eða ísböð?

Já. Við bjóðum ísbað (kaldan mini-pott) til kælingar á eftir sauna eða gufu — sígild leið til að fullkomna heita-kalda hringrásina og styðja við endurheimt. Ísbaðið fæst fyrir einn eða tvo — minna ísbaðið er um 88 cm að innra þvermáli, um 102 cm að ytra og um 100 cm á hæð — og fæst sérsmíðað í sama lit og saunahúsið eða Elite-potturinn, svo allt passi saman. Á veröndina á Donatello Midi má einnig setja kaldan pott. Segðu okkur hvað þú ert að hugsa um, þá finnum við réttu útfærsluna.

?Hver er afhendingartíminn?

Saunahús eru að jafnaði afhent til Íslands um 2–3 mánuðum frá pöntun (staða í framleiðsluröð getur haft áhrif). Mario spa-húsið hefur framleiðslutíma um 6–12 vikur. Heitir pottar, ísböð og saunatunnur eru að jafnaði framleidd á um 2–8 vikum eftir árstíma, auk flutnings til landsins — og ef allt er pantað saman kemur það í einni sendingu. Nákvæman tíma færðu með tilboðinu þegar húsið er fullmótað.

?Sjáið þið um flutning, undirstöður og uppsetningu?

3xT er söluaðili varanna. Almenna reglan er að uppsetning er ekki innifalin — en um hana má semja sérstaklega. Húsin eru afhent á heimilisfang eða verkstað.

Húsin þurfa slétt, lárétt undirlag sem þolir þyngdina — undirstöður eru steyptir bitar og framleiðandi leggur til staðsetningu þeirra svo húsið sitji rétt og lagnir séu á réttum stað. Undirstöður, rafmagns- og pípulagnavinna á staðnum eru á vegum kaupanda (löggiltir fagaðilar). Gott og breitt aðgengi að lóð er nauðsynlegt við losun.

Krani/hífingarbúnaður er ekki innifalinn og er nauðsynlegur við losun (Maxi er t.d. um 5 tonn; húsin má afhenda í hlutum til að létta flutning).

?Get ég valið lit og klæðningu?

Já. Ytri klæðning er úr thermowood og þú velur lit úr RAL-kerfinu. Klæðning getur verið liggjandi eða standandi, og hægt er að spegla klefanum (sauna öðrum megin, hvíld/sturta hinum megin). Að innan er panelklæðning og innrétting úr harðvið með bekkjum; gler er hert (t.d. stórir 1900×1900 gluggar og glerhurðir). Bæta má við panorama-gleri í framhlið eða gleri í stafn fyrir aukið útsýni (gluggi á stafni er þó ekki í boði í innrauðum klefa).

Svarta línan: 3xT hefur hannað svarta línu með framleiðandanum — saunahús, saunatunnur, heitir pottar og ísböð fást öll svört, svo heildin passi saman.

Hafðu samband

Segðu okkur hvaða gerð þú ert að hugsa um, stærð og hvar húsið eða potturinn á að standa — við útfærum lausnina og gerum þér heildartilboð.

Sími
869-0700
Netfang
Vefur