Einingahús

Category

Lýsing

3XT býður upp á einingahús úr timbri, framleidd í Litháen en aðalmarkaðssvæði þeirra er  þýskalandi norðurlöndin
í  einingahúsunum okkar eru notaðir gluggar sem eru framleiddir sérstaklega fyrir 3xT í Litháen.

Afgreiðslutími húsanna getur verið misjafn eftir álagi á verksmiðjuna, aðföngum í verksmiðju, stærð og gerð hússins og þetta þarf að skoða í samhengi hverju sinni til að fá raunsætt mat á afhendingu.

Ferlið :

  • Verðhugmynd gefin þegar grunnhönnun liggur fyrir, slík verð geta breyst ef hugmyndir kaupanda eru óljósar eða breytast mikið í hönnunarferli.
  • ​3xT getur aðstoðað kaupendur við að koma á samningum við hönnuði, byggingarstjóra og iðnmeistara.
  • Húsið er teiknað af íslenskum arkitekt, burðarþolsteikningar eru gerðar og samræmdar framleiðsluteikningum, lagnir og rafmagn þarf einnig að liggja fyrir til að endanlegt verð finnist, þegar kaupandi hefur lokið hönnunarferlinu er hægt að klára verðlagninguna.
  • Mikilvægt er að rýna teikningar vel fyrir pöntun svo að ekki komi til tafa á byggingarstað.
  • Samningur gerður við kaupanda, staðfestingargreiðsla greidd og húsið er þá framleitt í verksmiðju samkvæmt teikningum,
  • Allt gæðaeftirlit í framleiðsluferlinu er skráð í gæðakerfi sem fer beint í gæðakerfi meistara og byggingarstjóra á Íslandi.

​

3xT bíður uppá þjónustu byggingarstjóra í framleiðsluferlinu og því fylgja allar áfangúttektir ásamt ljósmyndum með þegar húsið kemur til Íslands og því tryggt að það standist allar kröfur á Íslandi, td slagregnsprófun glugga, lagnaefni, sem og önnur byggingarefni.

​​Starfsmenn 3xT fara á framleiðslustað án fyrirvara amk 1 sinni í mánuði eða í hverju framleiðsluferli.

​Framleiðandi getur oftast boðið upp á uppsetningu og frágang á verkstað, slíkt þarf að semja um tímanlega í ferlinu.

​3xT  getur aðstoðað kaupendur við að koma á samningi við byggingarstjóra.

 

Vinsamlegast hafið samband til að fá frekari upplýsingar

3xt@3xt.dk eða „HAFA SAMBAND“

Scroll to Top

Fyrirspurn um vöru