3XT býður upp á vandaðar hurðir og glugga frá viðurkenndum framleiðendum með áralanga reynslu af framleiðslu fyrir íslenskan markað.
Allar vörur sem við seljum eru CE vottaðar og uppfylla kröfur ÍST staðalsins 14351-1:2006+A2:2016. Vörurnar hafa staðist slagregnspróf og eru hannaðar til að standast krefjandi íslenskt veðurfar – hvort sem um ræðir nýbyggingar eða endurnýjun eldri mannvirkja.