UM 3XT
- Forsíða
- UM 3XT
Um 3xT
Gæði í gegn 3xT er íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem byggir á áratuga reynslu úr byggingariðnaði. Allt frá stofnun hefur markmið okkar verið skýrt: Að bjóða vörur og lausnir sem standast krefjandi íslenskar aðstæður og uppfylla ströngustu kröfur um gæði, endingu og áreiðanleika.
Vandað vöruval og sterkt samstarf Við veljum samstarfsaðila okkar af kostgæfni og leggjum ríka áherslu á að þekkja hverja einustu vöru sem við bjóðum út í æsar. Með milliliðalausum og beinum samskiptum við framleiðendur tryggjum við strangt gæðaeftirlit. Þannig geta viðskiptavinir okkar verið vissir um að fá lausnir sem við treystum sjálf og myndum nota í eigin verkefni.
Persónuleg þjónusta fyrir öll verkefni Hjá 3xT mætir þér persónuleg þjónusta og fagleg ráðgjöf, hversu stórt eða lítið sem verkefnið er. Við þjónustum jafnt einstaklinga sem fyrirtæki og höfum reynslu af fjölbreyttum lausnum fyrir:
Íbúðarhús og atvinnuhúsnæði
Gróðurhús og ræktun
Mannvirki og byggingar í ferðaþjónustu
Slökunarsvæði og palla í garðinum
Vöruframboð okkar er í stöðugri þróun til að mæta þörfum markaðarins. Ef þú finnur ekki það sem þig vantar í netversluninni okkar, bjóðum við upp á sveigjanlega sérpöntunarþjónustu til að tryggja að rétta lausnin fáist í hús.
Traust umfram verð Við keppum ekki um lægsta verðið. Við keppum um traust, gæði og lausnir sem endast.
3xT — Gæði í gegn.
+354 869 0700
Símanúmer