ECO-Gestahús og smáhýsi / Modularhús frá 3XT

Upplýsingar

Lýsing

3xT býður upp á modularhús úr timbri, framleidd við bestu aðstæður innandyra í verksmiðju. Húsin eru tilvalin fyrir ferðaþjónustu, sem heilsárshús eða sumarbústaði.
Framleiðendur okkar hafa byggt mikinn fjölda húsa í Evrópu síðustu árin og hlakka til að framleiða hús sem passa fyrir íslenskar aðstæður.

Að framleiða einingar innandyra við bestu aðstæður þýðir nákvæmari smíði, minni sóun og engin veðuráhrif á framleiðsluferlið – sem dregur stórkostlega úr hættu á myglu og öðrum rakaskemmdum. Húsið kemur á fleti eða flutningavagni tilbúið til uppsetningar.

 Þjónustupakkar

Við bjóðum þrjár útfærslur eftir þörfum og fjárhagsáætlun kaupanda. Allir pakkar bjóða upp á sveigjanlegar lausnir með möguleika á breytingum.

Eiginleikar Basic Standard Exclusive
Timburgrind C24 fulleinangaðar ✓ ✓ ✓
Útveggjaklæðning og þak ✓ ✓ ✓
Gluggar og útihurðir ✓ ✓ ✓
Innri klæðning og gólfefni – ✓ ✓
Raf- og pípulagnir, innihurðir – ✓ ✓
Baðherbergi, salerni, sturtuklefi – – ✓
Eldhús (IKEA), varmadæla, LED – – ✓
Afhendingarskilmálar Timburkassi Tilb. til tengingar Turnkey

  Kostir kerfisins

  • Sveigjanlegar útfærslur eru í boði, en stærðarbreytingar eru háðar takmörkunum
  • Traustir samstarfsaðilar í framleiðslu með áralanga reynslu af smíði og uppsetningu
  • 3xT hefur innanborðs starfandi arkitekt sem aðstoðar við hönnun breytinga sé þess óskað

 

Afhendingartími

  • 16–18 vikur frá upphafi verkefnis
  • Framleiðslutími 8–9 vikur
  • Einföld verkefni án breytinga: hægt að stytta um allt að 4 vikur
Scroll to Top

Fyrirspurn um vöru