Hámarksbirtu, orkusparnaður og vönduð hönnun – fyrir íslenskar aðstæður
Það er fátt betra en heimili þar sem náttúruleg birta flæðir inn um glæsilega glugga.
Hjá 3xT bjóðum við upp á ARKA Lux glugga og hurðir sem standast allt sem íslenska veðráttan hefur upp á að bjóða – þar sem náttúruleg viðarfegurð og veðurvarinn álklæðning mætast í fullkominni hönnun.
Gluggarnir eru hannaðir sérstaklega fyrir norðurslóðir með mjóum römmum sem hámarka ljósinnstreymi og lágmarka varmatap. Með U-gildi niður í 0,77 og getu til að þola allt að 72 m/sek vindstyrk, færðu glugga sem tryggja bæði öryggi og orkusparnað.
Allt timbur er FSC-vottað fyrir sjálfbæra framtíð, og ARKA Lux býður fjölbreytta valkosti – frá klassískum SLIMLINE timbur/ál gluggum til módern Structural lausna með timbur-gler samsetningu. Rennigluggarnir eru búnir háþróuðu Siegenia kerfi og gluggana er hægt að fá í fjölbreyttu litavali úr RAL og NCS litakerfunum.
Við hjá 3xT sjáum um alla þjónustu tengda gluggakaupum – ráðgjöf, pöntun og lausnaval.
Hafðu samband við okkur í dag – og við finnum réttu gluggalausnina fyrir þitt heimili.